Góðan daginn,
Hluthafinn hefur tekið saman umsvifamestu gagnaverskúnnana samkvæmt ársreikningum dótturfélaga þeirra á Íslandi. Á listanum er risavaxinn vogunarsjóður, sem varði 68 milljörðum til að flytja tækjabúnað til Íslands í fyrra í því skyni að finna hagnaðartækifæri á fjármálamörkuðum. Þarna er líka félag sem rekja má til fjármálasamstæðu í Hong Kong og er með meira en 10 milljarða bundna í örgjörvum hér á landi.
En fyrirferðarmest eru hin svokölluðu nýskýjafélög (e. neoclouds), sem sérhæfa sig í uppsetningu búnaðar fyrir gervigreindarvinnslu og voru með 160 milljarða króna eignir í íslenskum dótturfélögum í lok síðasta árs.
Umsvif nýskýjafélaga í íslenskum gagnaverum hafa aukist á þessu ári og ný þekkt nöfn eins og CoreWeave virðast hafa bæst í hópinn. En í erlendu viðskiptapressunni hefur mikið verið fjallað um verðlækkanir skuldsettra nýskýjafélaga eins og CoreWeave á hlutabréfamörkuðum og áhyggjur fjárfesta af því að dæmið gangi upp.
Hagfræðingur segir að undirliggjandi áhætta Íslands sé hófleg ef „ballinu lýkur“ og að erlendir aðilar fái skellinn en ekki íslenskir lífeyrissjóðir eða bankar.
Hluthafinn er í samstarfi við Internet á Íslandi hf. - ISNIC, skráningarstofu .is léna.
Ertu í fyrirtækjarekstri? Skráðu þitt .is lén og tengdu við tölvupóstinn þinn á einfaldan hátt.
Nýr þáttur af Uppgjörinu
Árshlutauppgjör fyrirtækja í Kauphöllinni hrannast inn þessa dagana og var því ákveðið að taka upp nýjan þátt af Uppgjörinu. Alexander frá AKKUR fór yfir það sem mestu máli skiptir í uppgjöri bankanna, smásölufélaganna, Icelandair og Nova.
Athyglisverðasta uppgjörið var líklega uppgjör Skaga, sem var langt yfir væntingum eins og rakið er í hlaðvarpsþættinum.
„Ég held við séum sá sjóður sem á flestar eignir af þessu tagi með beinum hætti“
Hluthafanum hefur þótt athyglisvert hversu oft Lífeyrissjóði Vestmannaeyja bregður fyrir þegar greint er frá því að innlend fyrirtæki hafi klárað fjármögnunarlotu.
LSV, sem er með 100 milljarða króna eignasafn, var aðeins einn af tveimur innlendum lífeyrissjóðum sem fjárfestu í Kerecis og náði að innleysa verulegan hagnað þegar fyrirtækið var selt til Coloplast árið 2023.

Sömuleiðis fjárfesti sjóðurinn í bæði Alvotech og Oculis áður en fyrirtækin voru skráð á hlutabréfamarkað, og þótt gengi hlutabréfa í báðum félögum hafi lækkað verulega frá því að það náði hápunkti á markaði eru fjárfestingarnar enn réttum megin við núllið.
Þegar eignasafnið er skoðað nánar má finna fjölbreyttan flóru vaxtarfyrirtækja. Hluthafinn ákvað því að spjalla við Jónas Dalberg, framkvæmdastjóra Jökla-Verðbréfa, sem sinnir eignarstýringunni, um það hvernig sjóðurinn nálgast slíkar fjárfestingar og einnig er vikið að nýjum lögum sem rýmka fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða.
Mikil ásókn í Registur
Ef það hafði farið fram hjá einhverjum:
Hver einast áskrifandi Hluthafans hefur fullan aðgang að Registur
Í Registri má finna ógrynni upplýsinga um rekstur og eignarhald fyrirtækja, og fleira sem Hluthafinn hefur tekið saman með því að skanna 250 þúsund ársreikninga aftur og aftur og aftur.
Viðtökurnar hafa verið frábærar og upplýsingaveitan er nú þegar komin með dyggan hóp notenda.
Þetta auðgar líka viðskiptafréttir. Á svipstundu gat ritstjóri tekið saman helstu gagnaverskúnnana og fjárhagsupplýsingar þeirra til að útbúa umfjöllunina hér að ofan.
„Win-win“ á alla vegu.
Það er fleira í pípunum og hver veit nema Hluthafinn verði óþekkjanlegur áður en vikan er liðin.
Fleiri fréttir





