Nýskýjafélög, sem sérhæfa sig í uppsetningu búnaðar fyrir gervigreindarvinnslu, voru með 160 milljarða króna bundna í íslenskum gagnaverum í fyrra og stórfelldur innflutningur á tækjabúnaði hefur haldið áfram á þessu ári. Hagfræðingur segir að undirliggjandi áhætta Íslands sé hófleg ef „ballinu lýkur“ og að erlendir aðilar fái skellinn en ekki íslenskir lífeyrissjóðir eða bankar.
Viðskiptavinir íslenskra gagnavera hafa sumir hverjir stofnað dótturfélög á Íslandi til að halda utan um starfsemina og hefur Hluthafinn tekið saman umsvifamestu fyrirtækin sem voru með alls 250 milljarða króna eignir hér á landi. Á listanum eru svokölluð nýskýjafélög (e. neoclouds) áberandi en þau sérhæfa sig í því að útvega tæknibúnað og innviði fyrir gervigreindarvinnslu.

Algengt er að þessi fyrirtæki hafi áður fengist við bitcoin-vinnslu en skipt um kúrs á síðustu misserum til að anna gríðarmikilli eftirspurn tæknirisa á borð við OpenAI, Google og Anthropic eftir reiknigetu. Þannig er nokkurn veginn saga bandaríska fyrirtækisins Crusoe, sem var með langsamlega stærsta efnahagsreikning þeirra fyrirtækja sem samantektin nær yfir.
Crusoe, sem var með bókfærðar eignir upp á alls 120 milljarða króna á Íslandi í lok síðasta árs, var upphaflega stofnað árið 2018 til að nýta jarðgasið sem fer til spillis við olíuvinnslu til að knýja rafmyntagröft í gagnaverum. Crusoe seldi frá sér rafmyntastarfsemina í fyrra og hefur að undanförnu sótt fleiri hundruð milljarða króna frá alþjóðlegum fjárfestingasjóðum til að fjármagna umfangsmikla og hraða uppbyggingu gagnainnviða, meðal annars fyrir Microsoft.
