Lífeyrissjóði Vestmannaeyja bregður stundum fyrir þegar greint er frá því að innlend fyrirtæki hafi klárað fjármögnunarlotu og hefur sjóðurinn í meiri mæli en aðrir lífeyrissjóðir hér á landi fjárfest með beinum hætti í vaxtarfyrirtækjum. Á bak við það er opið viðhorf gagnvart slíkum fjárfestingum sem má rekja allt aftur til ársins 1992.

Eignastýring Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja (LSV) er í höndum fjármálafyrirtækisins Jökla-Verðbréfa hf., sem er í meirihlutaeigu sama sjóðs. Jónas Dalberg, framkvæmdastjóri Jökla, segir að lífeyrissjóðurinn hafi fyrir mörgum árum farið í stefnumótun fyrir fjárfestingarstefnuna, sem sé í eðli sínu varfærin.
„Við þurfum að skila góðri ávöxtun til að standa undir skuldbindingum og niðurstaðan í þessari stefnumótun var sú að sjóðurinn ætti að vera tilbúinn að taka áhættu í óskráðum eignum,“ segir Jónas. Lífeyrisbyrðin – en það er hlutfallið milli lífeyrisgreiðslna og iðgjalda – er í kringum 159 prósent.
